Himmel blå himmel blå
guðfræðigengið
Salóme
27.01.2006 10:21:17 / gretagu

Hættur hér-opna annarstaðar

Ég er hættur hér.  Hvað er málið með þessar auglýsingar?  En ég er glaður.  Þetta hefur gefið mér tækifæri til að skapa mér nýjan vettvang fyrir blogg. Vertu velkomin/nn

NÝJA SÍÐAN----- http://gretarh.blogspot.com/ ------NÝJA SÍÐAN


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 16:20:12 / gretagu

Nothing to loose but the truth

Já svona er lífið í dag.  Allt í gangi og allt það.
Ég er bara ánægður.  Slakur. Byrjaður í nýjum kúrs.  Loksins nýtt efni. Ég er byrjaður í hebresku.  Lítur ágætlega út.  Kennarinn minn talar eðal-skánsku og er stoltur af gamalli hefð Lundarháskóla í hebresku.  Hebreska hefur þar verið kennd síðan 1666.

King Kong er fyndin mynd og ég veit ekki hvort ég sammælist fyllilega því sem Óskar sagði um að hún væri ógeðslega góð.  Á tímabili fannst mér eins og bardagahetjan og grínistinn Jackie Chan hlyti að hafa leikstýrt henni.

Ég og Egill höfum verið að skiptast á Wu-tang lögum.   Eftir áralanga höfnun á því sem Wu-tang stóðu fyrir í tónlist þá höfum við tekið þá aftur í sátt. Og fílum það eiginlega ræmur.  Ég rappaði meira að segja smá inn á tölvuna hans Egils og við sendum það til Bandaríkjanna í gegnum tölvupóst. Móttakandinn var Anna Mcmurray, kærastan hans Egils sem er líklega orðin minn helsti aðdáandi.  Sérstaklega eftir að ég rappaði fyrir hana part U-Gods í laginu Da mystery of chessboxin.  Wu-tang Clan spilar bráðum í Lundi.

Kvót dagsins:
“We live at a time were the church has lost its social status and power. Hey!, thats great! we have got nothing to loose but the truth”
Stanley Hauerwas, fyrirlestur í Baylor-University


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 19:01:37 / gretagu

bara när jag går med dig

Ég er nú meiri brandarakallinn.  Bara mættur á bloggvöllinn kvöldið fyrir próf. Ég kalla mig flottan. Virkilega flottan.

Ef þú ert komin(n) hingað í leit að lesefni um DV-málið þá geturðu gleymt því. 
Þetta blogg er DV-Free Zone.  Og ef þú skilur það ekki þá getur þú bara farið í enskuskóla.

Hversu langt ætli maður geti komist áfram í háskóla á mútum og hótunum. 
Ætli maður gæti klárað eitt ár án þess að læra neitt?  Ætli það væri mismunandi eftir deildum hvort kennarar þæðu mútur eða létu undan hótunum? Ætli það væri áhrifaríkast að múta og hóta á sama tíma? Lauma umslagi inn í prófið með hótunarbréfi og nokkrum seðlum? 

Það er nú gaman hvað það er mikið líf á kommentakerfinu mínu.
Fólk farið að nota það eins og msn og Óskar mættur til að segja trylltar sögur af næturlífinu og feiknarmisskilningum. Margir “netaðdáendur” Óskars hafa komið til að lesa þessar frásögur sem birtast hér og aðeins hér á kommentakerfinu mínu.

Hvernig líður þér annars?
Skrifaðu það niður og segðu mér það næst þegar við hittumst.  Ég er viss um að það á eftir að koma sjálfum/sjálfri á óvart hvernig þér leið núna.  Þér á kannski eftir að finnast það fjarlægt.  Annars hef ég heyrt um fyndna þjónustu á netinu.  Hún felst í því að maður getur sent sjálfum sér póst inn í framtíðina. Maður fær hann þá eftir einhver ár. Það er fyndið.  Merkilegt að senda sér t.d póst in í framtíðina: “Ertu sáttur við hver þú ert?”  -ég í fortíðinni-

Lagatextabútur dagsins er úr laginu Gårdakvarnar Och Skit. Þetta er líklega besti textabútur sem ég veit um í augnablikinu.  Kannski að ég sendi það inn í framtíðina og gái hvort ég muni það þá.

Så många vänner jag känt
ingen som jag riktigt behövde, nej
jag har aldrig varit normal
bara när jag går med dig


» 56 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 19:29:25 / gretagu

Evróvísa

Maðurinn er mættur til Lundar fyrir nokkrum dögum síðan og stritar við að lesa og læra.  Mikilsmetnar dyggðir fyrir námsfólk sem hefur áhuga á að ná fullnægjandi árangri í prófum. Tíminn er knappur að vissu leyti.  Útfrá námslegu sjónarmiði tók ég mér kannski helst til langt jólafrí á Íslandi.  En próf skal það vera. Ég vona að mér gangi vel.

Ég neita að tjá mig um DV-málið. Þess í stað skal ég tjá mig um Aftonbladet:  Aftonbladet er vinsælt blað í Svíþjóð. Punktur. Margir lesa það í SviþjóðSTOP

Ég mæli annars með því að fólk notir kommentakerfið mitt eins og það notar msn-ið sitt.  Það er alveg jafn gott og að í raun skemmtilegra því samtölin eru opinber.  Þetta hafa Hjalti og Hrafn fengið að reyna.  Endilega bara að heilsa upp á þá á kommentakerfinu mínu. Þeir ættu að vera þarna einhversstaðar. Það vona ég allavegana.

Af hverju er textinn minn ekki lengur gulur?  Gulur er í miklu uppáhaldi hjá mér.

Ég er annars hress og vil ljúka með lagatexta dagsins sem kemur frá Botnleðju og hinu skemmtilega framlagi þeirra til forkeppni Eurovision tvöþúsundogsúrkál.  Lagið Evróvísa sem kemur meðal annars inn á mikið vinnuálag.

Er ég ímyndunarveikur,
er lífið talnaleikur.
Ég er alltaf bara að vinna,
það er svo bara aldrei nóg.
Ég fullur er af ótta,
ég neita að leggja á flótta.
Hvað á ég að gera,
allir vita hver ég eeeeer
babbara baraba....

Neiiiii.... ég gefst ekki upp,
þó ég verði að vinna inn meira.
Ég gefst ekki upp,
þó ég eigi ekki aur.

Er ég ímyndunarveikur,
er lífið alvarleikur.
Er þetta allt sem er,
eða heldur tíminn fram hjá mér.
Mig vantar salt í grautinn,
hvar er beina brautin.
Hvað á ég að gera,
ég veit ekki hvernig fer.
babbara baraba....

Ég gefst ekki upp,
er eitthvað sem ég get gert fleira.
Ég gefst ekki upp,
þó ég verð að vinna inn meir...


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 14:43:22 / gretagu

I see some flowers on a hill side

Jæja já. Er fólk ekki bara þokkalegt? Ég held að það hljóti að vera. Jólin á næsta leyti og svona.  Það verður notalegt.  Jólin geta verið það.
Aður fyrr var haldið upp á annarskonar hátíðir á þeim tíma sem við höldum jól. Það hafa ábyggilega verið fínar hátíðir.  Fólk hefur ábyggilega borðað eitthvað gott þá líka og svoleiðis dæmi.  Þessi tími, þ.e 25. des var svosem bara valin af hentugleika af síðari tíma fylgjendum Jesú Krists.  Þeir bjuggu nefnilega margir í Rómarveldi og þar var 25. des. mikill hátíðsdagur. Kristið fólk ákvað að því að minnast komu frelsara sín í heiminn ekki á einhverjum degi sem það þóttist visst um að atburðurinn hefði átt sér stað. Neibb.  Það gaf bara 25.des nýtt innihald, notuðu þann dag til að minnast þessa óendanlega mikilvæga atburðar. 

Þannig að þegar einhver segir að jólin séu ekki kristin hátíð þá er það mjög hallærislegt frá mínum bæjardyrum séð. Alveg jafn hallærislegt og að sá hinn sami myndi segja við mig að 25 mars sé ekki afmælisdagurinn minn. Þvert á móti sé 25.mars afmælisdagur Ólöfu frænku hans. Hinum kristna eru jólin kristin hátíð.  Fyrir frændur Ólöfu þá er 25.mars afmælisdagurinn hennar.  Dagar eru ekki neitt í sjálfu sér. Við gefum þeim merkingu. Ég held hinsvegar að það séu ekkert endilega svo margir í mínu heimalandi sem skilji þessa hátíðsdaga í ljósi sinnar trúar.

Og talandi um daga.  Dagur B. var góður í gær þegar hann tilkynnti framboð sitt til 1.sætis í prófkjöri Samfylkingarinnar til Borgarstjórnar. Stuð á næsta leyti.  Stefnir í að það verði mikil átök um Reykjavíkurborg í vor. Ég skora á þig að fara og bjóða Degi fram krafta þína, þ.e.a.s ef þú ert á Íslandi.  Sendu honum bara tölvupóst og spurðu hvort þú getir gert eitthvað. Ekki vera feimin/n.  Það verður ábyggilega fjör.
Vala verður líklega eftir á Íslandi fram í febrúar til að taka þátt í baráttunni. Ég verð því hér í Sverige á eigin vegum drjúgan tíma eftir jól.

Bright Eyes gerir mjög góða tónlist að mínu mati.  Textarnir hans geta líka verið fínir.  Það var ein lína í einum textanna hans sem fékk mig til að hugsa. Það er nefnilega þannig að mjög gjarnan að þegar skáld eru að semja eitthvað þá nota þau einhverjar náttúrulíkingar.  T.d þegar draga á fegurð fram í einhverju þá er því gjarnan líkt við eitthvað sem er að finna í náttúrunni.  Sem er mjög fyndið því skáld í dag eru yfirleitt svona frekar mikið borgarfólk.  Lifa og hrærast í borgum og væri því kannski mun nær að skáld líktu hlutum við eitthvað í sínum reynsluheimi.  Allavegana. lagi Bright Eyes, Old Souls Song má finna eftirfarandi línur:
I see some flowers on a hill side
Like a wall of new TVs.

Þetta finnst mér fyndið.  Þetta er eiginlega þvert á það sem maður á að venjast.

kvót dagsins er góð tilvitnum sem Egill Eyjólfsson benti mér á og er úr Matrix kvikmyndunum.
Commander Lock:
Not everyone believes what you do Morpheus.
Morpheus: My beliefs do not require them to.


» 90 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 16:08:21 / gretagu

"Jag ska inte tvinga dig"

Smáskífan er mætt á svæðið. Illa flott.  Håkan Hellström með lagið 13. Það er ekki hægt annað en að vera ángægður með Håkan. Skífan kom út á miðvikudaginn en ég náði að versla hana fyrst áðan vegna þess að hún fékkst ekki í bænum Vaxjö þar sem ég og Vala vorum í gær og fyrradag. Vaxjö er samt góður bær og ég reddaði mér annarri Håkan smáskífu í staðinn.

Ein stelpa í bekknum mínum sagðist hafa horft á kvikmyndina Hrafninn flýgur í gærkvöldi,  Langflestir svíar held ég að hafi séð hana.  Allaveganna er það ekki ósjaldan að þeir luma á línunni: "Þungur hnífur".  Mér fannst reyndar dálítið fyndið að kærasti stelpunnar hafði komið með þessa mynd heim af bókasafninu og þau horfðu á hana saman. Voða kósý.  Ég sagði henni að þessi mynd væri ekki talin til meistaraverka íslenskrar kvikmyndagerðar.
Það er nú svolítið fyndið að þessi mynd sé einhverskonar frontur fyrir ísland.  Einn helsti áhrifavaldur á íslenska þjóðarímynd á norðurlöndum kannski?  Nei, samt ekki.

Ég er eitthvað að velta fyrir mér hvað ég á að taka næstu önn.  Það lítur út fyrir að ætla að vera meira tungumáladæmi, þ.e hebreska og jafnvel meiri gríska.  Kemur í ljós.  Ég verð reyndar að segja að tungumálin eru kannski ekki ástæðan fyrir því að maður fór í guðfræði og stundum getur þetta orðið dálítið þurrt.  En þetta nýtist manni mjög vel í flestum öðrum fræðasviðum innan guðfræði.

Svo mætir maður bara til Íslands miðvikudaginn næsta.  Jebb.  Tannlæknir og klipping eru víst á dagskrá fyrsta daginn. Krakkarnir í bekknum mínum halda að ég sé með eitthvað "trust-issue" gagnvart sænskum hárgreiðslumönnum.  En það er ekki þannig.  Ég þekki bara ekki inn á hár-senuna hér og ég tek ekki sénsinn á að labba inn á einhverja hárgreiðslustofu og koma út með greiðslu á sem enginn fílar.

Ég læt hér fylgja textann af laginu 13, hinni nýútkomnu smáskífu Håkan Hellström.  Uppáhaldslínan mín er í jafnframt síðasta setningin í laginu.

Kan jag gå med dig hem från bussen?
Kan du möta mig på bänken där vi delade första folkölen?
På fredag kanske jag kan få biljetter till dansen
Så I can shake you, oooouuoh
Säg till din far “Get off my back”
Ååh säg vad vi sa, om att ”Paint it black”
Rock ’n roll dör aldrig nej
Kom tätt intill det är okej
So I can shake you…ooh.

"Får jag veta vad du tänker på?
Skulle du råna en bank för oss två?
Om det är så låt mig veta
Och om det är nej så går jag
Jag ska inte tvinga dig"


» 112 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 23:14:33 / gretagu

It is very easy

Jæja, nýkomin frá Kaupmannahöfn þar sem ég og Vala áttum góða dvöl. Mjög góða.
Dagur, bróðir hennar Völu átti erindi í Kaupmannhöfn bauð okkur að dvelja helgina með sér á hótelherberginu sínu.  Góðar stundir.

Það er eitt dálítið fyndið við Danmörku.  Það er einhverskonar kreditkortahatur sem er í gangi þar.  Langfæstir taka önnur kort en svokölluð Dankort.  Mastercard og Visa eru bara djók þarna úti og ferðamenn verða að gjöra svo vel að fara í hrabanka.  Ég fíla það ekki. Sérstaklega ekki þegar allir hraðbankar svo gott sem tæmast á þessum helgum í jólamánuðinum. 

Ég rakst á Heiða Kára Rannversson, arkitektanema þar sem hann var á gangi fyrir utan óperuhúsið í köben.  Hann sagðist einfaldlega bojkotta Dankort.  Notar bara pening.  Gott hjá honum!  Þessir forsprakkar Dankort hljóta að hóta kaupmönnum.  Fátt annað getur útskýrt þetta.  Af hverju ættu kaupmenn að hafna fjármunum ferðamanna, og gera þeim erfitt fyrir að versla hjá sér? 

Ég kem heim þann 21. Desember.  Ég er að vonast eftir að komast í eina góða klippingu fyrir jólin. Hárið er farið að þvælast fyrir mér við ólíklegustu iðjur og ég nota svitaband meira en ég vildi.  Hárið truflar mig  t.d við það að borða. Það þvælist fyrir mér. Líka þegar ég er í skólanum að grúfa mig yfir gríska texta.  Ég meika ekki að vera með eitthvað svitaband í hverjum tíma eins og ég sé eitthvað að fara að massa kennslustundirnar.  Þannig að ég þarf alltaf að halda hárinu á meðan ég er að læra.  Mér finnst það ekki kúl.  Ég læt þetta nú reyndar hljóma eins og ég sé með hár niður á hné eða eitthvað.  Þannig er það nú ekki. Ég er ekki ósmekklegur á neinn máta. Ekki að mínu mati.  Margir svíarnir myndu reyndar leysa málið með því að taka hárið og greiða það aftur og til hliðar og forma þannig hinn sænska ljónamakka. Það er vinsæl greiðsla ef maður ætlar að vera flottur í Svíþjóð. 

Að lokum vil ég benda á eitt.  Bloggið mitt hefur verið tilnefnt til hinna Keipdúnsku vefverðlauna 2005.  Þar er ég tilnefndur í flokki bestu nýliða. Þetta er víst rosa upphefð í netheimum og kemur til með að verða blogginu mínu og öllum lesendum þess til mikils framdráttar. Þannig er það bara.


Kvót dagsins:  "It is very easy to overestimate the importance of our own achievements in comparison with what we owe others."
Dietrich Bonhoeffer


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 19:41:15 / gretagu

Konichiwa Bitches!

Núna er á leiðinni kvikmynd sem ég vona að verði góð.  Kvikmyndin heitir Narnia og er gerð eftir Narníusögunni hans C.S Lewis,Ljónið, Nornin og skápurinn.  Þá sögu kannast flestir við, um börnin sem labba í gegnum skáp og ganga þannig inn í Narníu þar sem vetur hefur ríkt í 100 ár.  C.S Lewis var nokkuð merkilegur en hann var rithöfundur sem snerist til kristinnar trúar og varð í kjölfarið gífurlega áhrifamikill innan kristninnar.  Það er nú svoldið fyndið líka að Það var J.R.R Tolkien, vinur Lewis sem hafði hvað mest áhrif á hann varðandi hans trúarákvörðun. En aftur að Narníu kvimyndinni.  Það eru ekki allir sem vita hver pælingin er á bak við Narníu söguna.  Jú, bókin er í raun allegoría, þ.e líking um mikilvæga þætti kristinna lífsskoðunar. Hún er í framhaldi hlaðin sterku myndmáli.  Þannig má t.d líta á Ljónið, Aslan sem einskonar Krists-gerving en Aslan er einmitt konungur sem er jafnframt fórnað.  Nornina Hvítu í sögunni má aftur skoða sem fulltrúa hinna illu afla enda hefur hún lýst yfir eilífum vetri í Narníu.  C.S Lewis sagði sjálfur að hann vildi að sagan gerði það auðveldara fyrir börn að öðlast skilning á kristinni lífsskoðun.   Ég vona að þetta verði góð mynd. Trailerinn getur þú séð hér.  Ég myndi velja trailer númer 2.

Mér skilst að margir söfnuðir vestanhafs (mjög vinsælt að segja svona) séu að taka upp þetta Narníudæmi og sjái hana sem frábært tækifæri og eitthvað til að stunda trúboð í tengslum við sýningar myndarinnar. Ég veit ekki hvernig það gengur.  Kannski getur verið sniðugt að hafa þannig samræðugrundvöll, þ.e eitthvað til að tala útfrá þegar rætt er um kristindóminn.  Kannski, Vonandi.  Maður hefur samt á tilfinningunni að maður hljóti að vera svolítið á núllpunkt í sinni trú ef maður tengir best í gegnum svona kvikmynd.  Og kannski er það þannig. Kannski eru flestir einfaldlega bara á núllpúnkt varðandi sína trúarafstöðu.  Með einhverja bráðabirgðarástæðu til að þurfa ekki að gera upp við sig skýrt kall Jesú Krists til eftirfylgni við sig.  Já, ég held að þannig sé staðan gjarnan hjá Vestur-Evrópubúum.  Mér finnst líklegt að í framtíðinni muni Afríka, og Suður-Ameríka og Suðaustur-Asía senda trúboða til Vestur-Evrópu til að kalla fólkið sem þar býr til sannrar trúar á Jesú Krist.  Þungamiðja Kristninnar í dag er nefnilega algerlega kominn þangað og hún heldur samt áfram að færast þangað.  Fyndið ef það verður að íbúar þessara heimsálfa verði síðan trúboðar í Evrópu, þeirri álfu sem á sínum tímum færði þeim Fagnaðarerindið. Ég er ekkert að byggja þetta á neinu bulli og almennum spekuleringum.  Raddir þessa efnis hafa heyrst víða í kristnum samfélögum Afríku.

Jæja, jæja. Ég er alvega að fíla að lesa grísku þessa önn í skólanum. .  Getur samt verið þreytandi því maður mikið og les hægt.Jebb. 

Ég er mjög hrifinn af einu lagi sem margir eru með varnagla gagnvart.  Þeir sem meika það ekki eru samt að misskilja málið að mínu mati.  Þeir halda að viðkomandi tónlistarkona sé að reyna að vera ógeðslega töff og sé bara með massíva stæla.  Ég held hinsvegar að hún sé að grinast og finnst textinn illa fyndinn auk þess sem lagið er sjúklega gott.  Söngkonan er sænsk, syngur á ensku og kallast Robyn.  Sænska hljómsveitin The Knive sér um undirspilið í laginu sem heitir því undursamlega nafni Konichiwa Bitches.
Ég fíla þetta lag mjög vel og mæli sterklega með því sem og laginu Handle me sem er á svipuðum nótum.    Ég birti samt bara brot af textanum því hann er svo langur.

Konichiwa Bitches
You wanna rumble in my jungle
I'll take you on
Stampede your rumpa
And send you home
You wanna rumble in space
I put my laser on stun
And on tha north pole I'll ice you son

You wanna thrilla in mah nilla
You'll be killer bee stung
Wanna taste of vanilla
Better watch your tongue

'Cause I'll hammer your toe
Like a pediatrician
Saw you in half
Like I'm a magician
Tear you down
Like I'm in demolition
Count you out
Like a mathematician


» 138 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 21:35:37 / gretagu

Beast for thee

Halló
Hvað er í gangi hér?  Mér þykir leiðinlegt ef einhver tók illa túlkun minni á niðurstöðum skoðanakannanarinnar. í minni síðustu færslu  Skoðanakönnunin var nú á léttu nótunum og túlkanirnar voru grín. Svona er grínið hérna stundum.

Annars hef ég komist að einu og er feginn að eiga nú þessa þekkingu.  Kaldhæðni á ekki heima í alþjóðlegum samskiptum. Það er bara þannig.  Það er bara riskí bissniss og við ættum bara að sleppa því. Það eru alltof miklar glufur fyrir misskilning.  Og við(íslendingar) verðum að hætta að ímynda okkur að við séum með einhver kaldhæðinn flottan húmor og að enginn skilji hann af því að aðrir séu ekki með jafn kaldhæðinn flottan húmor og við. Þetta er sjálfsblekking sem byggir á hálf-fáránlegum þjóðrembingi og vanlíðan yfir því að engin hlæji að okkur í útlöndum.

Nýlega varð ég vitni að einu svona dæmi.  Kunningi okkar Völu er Bandarískur og getur því talað móðurmál sitt hvar sem er.  Einhverju sinni var ég með honum á stúdentasvæðinu og hann var að skrifa blaðagreinar fyrir eitthvað nemendablað. Ein ritstýra nemandablaðsins kom labbandi og bað hann um að senda sér vinsamlegast greinina á emaili. Bandaríkjamaðurinn ákvað að grínast á sæmilega fyndin hátt.  Sagði "ekkert mál, ég læt þig síðan bara fá reikningsnúmerið mitt þannig að þú getir lagt inn á mig 2000 dollarana mína". Stelpan fór alveg í köku og fór eitthvað að útskýra af hverju hún gæti ekki borgað honum 2000 dollara fyrir greinina.  Bandaríkjamaðurinn baðst afsökunar, sagðist hafa verið að grínast og eitthvað þetta hafi verið kaldhæðni.  Þá sagði stelpan eitt sem var alveg rétt.  Hún sagðist sjálf nota kaldhæðni iðulega.  Hinsvegar væri það þannig að þegar maður þekki ekki manneskjuna sem maður á samskipti við þá sé mikil hætta á misskilningi. Sú hætta eykst enn og aftur með tungumálaerfiðleikum og menningarmun.


Á amazon.com skoðar maður stundum bækur. Það er vel staðið að amazon og oft hafa einhverjir lesendur bókanna úti í heimi skrifað einverskonar umsögn um bækurnar.  Stundum hef ég rekist á ótrúlega flottar, vel skrifaðir umsagnir krítik.  Þá hef ég jafnvel klikkað á viðkomandi aðila sem skrifaði kritíkina og get þannig fengið að sjá allar aðrar þá bækur sem hann eða hún hefur gagnrýnt.  Af og til hef ég lent á liði sem virðist vera afbrigðilega afkastamikið í þessum geira hefur skrifað hunduruðir dóma.  Amazon.com heldur líka svona stigalista, þ.e hverjir hafa skrifað flesta dómana.  Sá sem er efstur hefur skrifað 10292 dóma! Já,10292 dóma.! Ég næ ekki alveg þessari tölu og velti því fyrir mér hvort viðkomandi geri annað en að lesa og gagrnýna bækur á amazon.com.  Amazon byrjaði reyndar held ég ekki fyrr en 1996 og það væru þá cirka 3650 dagar þannig að þessi viðkomandi hefur þurft að gagnrýna sirka þrjár bækur á dag.  Harriet Klausner(en það heitir lestrarhesturinn) getur ekki verið í annarri vinnu.  Ætli hún vinni ekki hjá amazon.

Lagatexti dagsins er af disknum Superwolf þar sem Will Oldham fær útrás fyrir textagáfu sína.  lagið heitir Beast for thee og ég birti aðeins bút úr textanum hér. Ekki af því að hitt sé ekki nógu gott. Það er það vissulega. Heldur vegna þess að það er líklegra að lítið sé lesið heldur en mikið. Ef þú skilur......

Why aren't you kind to me ?
You could so easily
Take me in your arms and see
A donkey – a beast for thee

If you had half a mind
Leave worldly things behind
Devote to being kind
You to me – a beast for thee......


» 110 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 14:40:05 / gretagu

Nåt Gammalt, Nåt Nytt, Nått Lånat, Nåt Blått

Friggin A, Hvað þetta er gott! Håkan Hellström er að fara að gefa út nýja plötu eins og ég hef áður skrifað.  Núna er hægt að fara in á heimsíðuna hans og þar er hægt að heyra hluta úr fyrstu smáskifunni "13" og horfa á  mynbandið.  Og þetta er mjög gott!  Platan heitir "Nåt Gammalt, Nåt Nytt, Nått Lånat, Nåt Blått" enda er þetta nokkurskonar skífa þar sem safnað hefur verið saman gömlum óutgefnum lögum, nýjum lögum og koverlögum.
Af hverju er hann svona góður?  Ég vildi að ég ætti svörin.

Jæja og þá er loksins komin niðurstaða í skoðanakönnuninni.  Það er samt bara hálf vinnan því það á eftir að túlka niðurstöðurnar. Rannsóknarspurningin var "Á að setja hömlur á allan mat?"  Ég túlka niðurstöðurnar á eftirfarandi máta.

já, engin spurning - 13% 
13% svaranda eru einshverskonar fæðufasistar eða þá framsóknarmenn. Sem er út af fyrir sig mjög athyglisvert.  Áhugavert væri að gera frekari skoðanakönnun innan þessa hóps um það hversu víðtækar þessar matarhömlur ættu að vera.

Nei alls ekki! - 19%
19% sem svöruðu Nei, alls ekki. Þetta eru ábyggilega vanafastar mannverur.  Vill halda í það gamla og sér enga þörf á breytingu.  "Til hvers að breyta þegar maður hefur það ágætt?" spyr það sig. Ég er nú feginn að fólk hefur ekki alltaf hugsað þannig í matarmálum. Þá væri maður nú ennþá að borða súrmat í öll mál.

kannski, hef ekki mótaða skoðun - 6% 
óákveðnir eru 6%.  Mjög sennilega heiðarlegar mannverur sem viðurkenna að vandmálið er flókið og engin "auðveld svör" til. Samt þá eru þessi 6% soldið áhrifalaus í umræðunni. 

Er nupo-létt matur? - 25% 
25% svara með spurningu og spyrja hvort að nupo-létt sé matur.  Meirihlutinn ábyggilega í heimspekideild að reyna að dreypa málum á dreif til að þurfa ekki að taka afstöðu. Restin er síðan heilsuliðið sem sér kannski matarhömlur sem tækifæri til megraunar.

Þetta er ekki spurning um hömlur - 38% 
35% segja að þetta sé ekki spurning um hömlur.  Þarna hefur restin af menntafólkinu sett sitt svar.  týpískir akademíkerar sem geta ekki tekið afstöðu heldur snúa þess í stað upp á vandamálið, segja að það þurfi að breyta orðræðunni um matarhömlur og eitthvað í þá veru.  Þannig geta viðkomendur komist hjá því að taka afstöðu og samt liðið eins og þeir séu að því.

Í kjölfar komments sem ég lagði inn við síðustu færslu ætla ég að birta tilvitnun sem mér finnst illa góð.

"The functional character of contemporary religious convictions is perhaps nowhere better revealed than in the upsurge of religious conservatism.
While appearing to be a resurgence of `traditional' religious conviction, some of these movements in fact give evidence of the loss of religious substance in our culture and in ourselves. Christianity is defended not so much because it is true, but because it reinforces the `American way of life.'
Such movements are thus unable to contemplate that there might be irresolvable tensions between being Christian and being `a good American'"
Stanley Hauerwas, The Peaceable Kingdom


» 121 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 19:00:16 / gretagu

Den fulaste flickan i världen

Jebb,  þannig er það.

Hefurðu heyrt talað um það að vera cheap-shot-artist?  Það er concept sem mér finnst svolítið sniðugt.  Cheap-shot-artist er einhver sem að tekur cheap shots.  Segir sig kannski sjálft.  Um daginn skilst mér að kona hafi mætt í Kastljósið og sagst geta talað við stofnfrumurnar sínar sem aftur skildu hana og hlýddu.  Fullt af fólki brást ókvæða við og skrifaði ýmislegt á netið gegn þessari konu.  Það að hafa gert það er merki um að maður sé cheap-shot artist. Alveg eins og maður er cheap-shot-artist að veitast opinberlega eða hálfopinberlega að Ástþóri Magnússyni fyrir eitthvað sem hann segir.  Þetta er mjög gróf lýsing á cheap-shot artists og í raun villandi. Það þarf oft innsæi og árvekni til að átta sig á þegar cheap-shots eru í gangi. Þetta er meira spurning um stíl.  Hvernig gagnrýninn fer fram. Það er t.d hægt að gagnrýna "the religious right" í BNA og vera algjör cheap-shot-artist(ólíklegasta fólk breytist í cheap-shot-artists við það umræðuefni) eða gagnrýna það á áhugaverðan máta.
Ef þú kannast við sjálfa/n þig í þessari lýsingu, ekki vera reið/ur við mig. Það er ekki mér að kenna og auk þess eru þetta bara vangveltur.

Óskar kom í mjög óvænta heimsókn til Lundar á Laugardagskvöldi og var horfinn aftur síðdegis á sunnudeginum.  Íbúar Lundar vilja þakka honum kærlega fyrir heimsóknina og biðja hann endilega um að láta sjá sig aftur. Óskar er kominn með uppáhaldsstað í Lundi en það er mjög furðulegur. Grillbar-Café staður nálægt lestarstöðinni.  Þar gat hann hangið tímunum saman. Sem arkitekt hefur hann ábyggilega verið stórundrandi hvernig hægt er að búa til stað sem er á sama tíma fullkomin grillborgarabúlla og huggulegt kaffhús.  Samruninn var fallegur og eðlilegur eins óeðlilegur og hann hljómar.  Kannski lærði Óskar meira um arkitektur á einni heimsókn á þennan stað en á öllum ferli sínum sem nemi í arkitektúr.

Óskalagabeiðnir eru byrjaðar að streyma og allir vilja fá að sjá sinn uppáhaldslagatexta birtann hér á blogginu.  Síðast var það Helgi Guðnason sem margir þekkja undir dulnefninu Nasi frá því að hann var í MH en hann langar ofsa mikið að sjá textann við lagið: Den fulaste flickan i världen.   Jú, Helgi draumar rætast.  Líka í Belgíu!
Þetta er í raun frekar sérstakur texti þar sem Håkan Hellström talar um að hann sé skotinn í ljótustu stelpunni í heiminum.  Hann segist ekki vera skotinn í því sem hún er heldur því sem hún er ekki. Ætli þetta hafi einhvern tíman verið satt um Håkan?

Den fulaste flickan i världen

Du vet,
hon har skeva framtänder
och hon går som en studsande boll
hennes ögon svänger åt olika håll
folk vänder sig om
för hennes panna är så blek
och näsan är sned
och jag rör inte för det,
men jag är kär i den fulaste flickan i världen

Och inget vet om det,
men jag ska berätta allt för dig
jag ligger på sängen och tänker:
"tänk på mig"
jag är inte i kär i henne för vad hon är
utan för vad hon inte är
jag vet, det låter konstigt när jag säger det
jag är kär i den fulaste flickan i världen


» 65 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 20:18:15 / gretagu

jag kan inte tro att jag fortfarande lever - en hund som jag

Ég vil byrja á því að þakka þeim sem hafa tekið þátt í skoðanakönnuninni. Það er ykkur að þakka að hún verður mjög marktæk.  Það er hnífjafnt á milli ólíkra valmöguleika. Spennandi?!  Þannig er það nú.
 
Ég reyni að blogga ofurvarlega til að vekja ekki sjálfan mig.

Follow that guy!
Ég á enga reiðskó og er alveg sama. Einu sinni fór ég í reiðskálmar og öllum fannst ég lélegur að fara í þær.  Sögðu það augljóst að ég kynni ekkert í hestamennsku. Hestamennska? það er nú eitthvað fáránlegt orð.  Það hlýtur að vera einhver lélegri týpa af mennsku.  Kannski  ef maður væri svona Centaur/Kentár, þú veist svona hálfur maður og hálfur hestur. Þá væri kannski fyrst hægt að tala um hestamennsku.  Ég man nú annars eftir fáranlegum myndum sem Óskar vinur minn teiknaði af Kentárum þegar hann var 8-9 ára.  Ég vil ekkert vera að segja frá því hér hvernig myndir það voru.  Þú getur bara spurt mig seinna.  Óskar var alltaf flinkur að teikna.  Kannski ekki frá upphafi en hann æfði sig í Skotlandi þega hann bjó þar.  En nóg um Hann.  Það er ekki eins og hann sé sá eini sem hefur búið í Skotlandi. Árni Vilhjálmsson, vinur minn bjó þar líka.  En það er önnur saga og í raun styttri.Það er samt búið að gera kvikmynd úr henni.  Braveheart! Mjög góð mynd. Pabbi hans Óskars hefur alltaf þótt líkur Mel Gibson sem lék í þeirri mynd á meðan Pabbi hans Árna þykir mjög líkur Kevin Kostner(Pabba hans Árna finnst það sjálfum og hann er prófessor í HÍ þannig að hann ætti að vita það).  Það er samt fyndið því maður hefði haldið að það ætti að vera öfugt. þ.e að Kevin kostner hefði leikið í Braveheart.  Ég átti nú Braveheart á spólu einhversstaðar.  Kannski að maður kíki á hana við tækifæri.

Og svo eru frábærar fréttir fyrir unnendur Håkan Hellström en ný plata með honum kemur út 28.desember og fyrsta smáskífan 14. des.  Ef þú ert ekki búin/n að gefa Håkan séns þá mæli ég með því að þú gerir það.  Tékkaðu á lögum eins og: Känn Ingen Sorg För Mig Göteborg, Kom Igen Lena!, En Midsommarnatts Dröm og: Den fulaste flickan i världen
Þú verður ekki svikin/n!!!

Ég ætla í framhaldi að birta einn lagatexta eftir Håkan Hellström.  Þann lagatexta sem mér finnst rétt að birta í dag. Það er textabútur úr laginu: Här kommer lyckan för hundar som oss. Kannski skilurðu þetta ekki. kannski smá.  Ég veit ekki.

Jag kastar sten mot solen för jag hatar den
Jag sätter knivar i fotografin
Jag går på samma gator tills dom vänder
Den här stunden är resten av mitt liv
Och jag behöver en smäll på käften för att komma i rätt balans
Jag kan se mitt namn i tidningsbokstäver
Men jag kan inte tro att jag fortfarande lever

En hund som mig

.........En liten pojke i för stora skor säger:
"Jag ska nog lyckas"

Här kommer lyckan, för hundar som oss
Här kommer lyckan, för hundar som oss
För hundar som oss
För hundar som oss


» 78 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 13:02:03 / gretagu

Theopolitical Imagination

Aha. Núna er veturinn loksins mættur til Lundar. En þetta er ekki vetur eins og maður hefur vanist.  Þetta er meira svona......rússneskur veturLogn og frost.  Ég er ekki frá þvíþað sé ágætis týpa af vetri. 

Þessir hlekkir allir hérna fyrir ofan eru samt bara grín.   Ég skrifaði upp þessi ólíku orð í Google og valdi síðan Jag har tur þannig að tölvan valdi fyrir mig síður til að linka við þessi orð.  Ég vona að þetta hafi ekki valdið truflunum í lífi þínu.

Fór til Kaupmannahafnar á Laugardaginn og þar var soldið það sama uppi á teningnum: rússneskur vetur.  En það var hlýtt inni hjá Óskari þar sem hann hafði boðið í innflutningspartý.  Margt gott fólk var mætt þangað og það var meira að segja alvöru DJ!!!! Sá DJ var reyndar ekki okkur að skapi en annar meðleigjandinn hans Óskars var ótrúlega ánægður með fyrirkomulagið enda algerlega eftir hans höfði. Meðleigjandinn er danskur og er með fyndið yfirvaraskegg. Óskar var sniðugur að vanda og hafði rakað sig þannig að hann var líka með yfirvaraskegg.  Síðan bauð hann upp á gerviyfirvaraskegg og skegglím þannig að gestum gat liðið eins og þeir ættu heima þarna.  Ég og Vala fórum síðan heim til Lundar snemma nætur. 
Gunni svíi var mjög skilningsríkur en ekki ánægður með heimförina því að hann var að vonast eftir að við gætum gist með honum í Kaupmannahöfn.  Mér finnst hinsvegar oft vesen að vakna sem ferðamaður og var bara sáttur við að vakna í Lundi og geta farið í Aerobic tíma þangað sem ég mætti og tók maga, rass og læri ásamt hinum stelpunum. Það var eiginlega soldið skemmtileg upplifun að fara í Aerobic.  Ég gerði mér samt enga grein fyrir því að það yrði svona mikið um maga, rass og læri. Það stóð "gympa med Stång" í lýsingunni.  Ég fór um daginn í "grabbgympa" sem var svona kúl dæmi þar sem maður var í gamaldags stöðvaþjálfun, lyfta lófum. hífa sig upp og sippa. Hélt að þetta yrði meira líkt því. Ég fílaði samt bara ágætlega líka "gympa med Stång"

Margir velta því fyrir sér hvað SAS stendur fyrir í "blogghringurinn SAS".  Það stendur fyrir Scandinavian Airlines sem allir þekkja.  Blogghringurinn felur engar skyldur í sér en er samstöðutákn og merki um ákveðna samkennd sem bloggarar upplifa vegna landfræðilegrar staðsetningar sinnar og kunningsskapar jafnvel.

Ég ætla að enda á tilvitnun sem hittir vel í mark. Hún er úr bókinni Theopolitical Imagination eftir William T. Cavanaugh:  

The state as such does not exist. What exists are buildings and aeroplanes and tax forms and border patrols. What mobilizes them into a project called "nation-state" is a disciplined imagination for a community occupying a particular space with a common conception of time, a common history and a common destiny............
.........We are often fooled by the seeming solidity of the material of politics, its armies and offices, into forgetting that these materials are marshaled by acts of the imagination. How does a provincial farm boy become persuaded that he must travel as a soldier to another part of the world and kill people he knows nothing about?  He must be convinced of the reality of borders, and imagine himself deeply mystically, united to a wider national community that stops abruptly at those borders.


» 66 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 13:32:46 / gretagu

Thats cynicism

já eða það
Mér gengur ágætlega í skólanum takk fyrir að spyrja.  Ég er bara í forngrísku núna þessa önn og því ekki búinn að gera annað en að lesa gríska texta og "banka in" endalausar endingar(hehe, endalausar endingar) og sagnform. Já, ég er bara í forngrísku fyrir jól. Systemið er öðruvísi í Sverige og að mínu mati betra.  Þú ert bara í einum kúrs í einu en ekki með margt í gangi á sama tíma. Fyrir vikið nær maður mun betri tökum á námsefninu.  Ég er búinn að klára fyrri kúrsinn og er byrjaður á nýjum.  Ég eisaði á fyrri grískukúrsnum og vona að þessi eigi eftir að ganga líka vel.  Vægi sænskunnar í þessum kúrs er þó mun meira því að þýðingarverkefnin eru orðin lengri og eru ekki eins einföld. Bara ef þú vildir vita.........

Íbúðin okkar Völu er stór, eiginlega mjög stór að mínu mati.  90 fermetrar. Jebbs.
Í staðinn er hún ekki eins miðsvæðis og hægt væri.  Í rúmar 15 hjólamínútur frá miðbænum. En það er samt ekki svo langt.
Það var fyndið fyrsta daginn þegar við mættum á svæðið og ætluðum í íbúðina okkar.  Við lásum húsnúmerið(sem var í alvöru mjög flókin lesning) og löbbuðum inn í hús númer 3 og reyndum að opna íbúð sem við töldum vera okkar með lykli.  Það gekk ekki. Við vorum frekar ráðvillt á ganginum þegar út úr íbúðinni kom maður með skrúflykil og leit út fyrir að vera í annarlegu ástandi.  What are you doing here? sagði hann og mundaði skrúflykilinn í hendinni titrandi. Hann leit út fyrir að vera frá khasakstan og talaði þar að auki nákvæmlega eins og Borat sem Ali-G leikur svo vel. Nei ég meina það. Hann talaði nákvæmlega eins og Borat.  Það var ógeðslega fyndið.  Það var samt ekki fyndið strax því hann virtist vera í svo miklu ójafnvægi. Why are people always trying to open my door with a key? Það kom í ljós að við vorum ekki þau einu sem höfðum reynt að komast inn í íbúðina hans þann daginn.  Hann var reiður og hræddur.  í þann mund kom fullt af fólki inn allt á leiðinni að fara að búa í íbúðinni hans. Hann tók algerum stakkaskiptum, varð ógeðslega næs þegar hann fattaði að um misskilning var að ræða en ekki skipulagða ofóknir og fór og hjálpaði öllum að labba um hverfið og finna íbúðina sína.  Fyrst náði hann samt í vin sinn.  Þá skyldi ég af hverju hann hafði verið hræddur.  Vinur hans hafði augljóslega verið laminn ekki alls fyrir löngu.  Kynnum okkur lauk síðan á því að hann sagði með sínum Borat hreim:  If you need any help, you know where i live. Síðan hló hann.  Dí hvað hann var góður.

Ég vil endilega að þú takir þátt í skoðanakönnuninni hér til hliðar en eins og allir vita þá hvílir marktækni svona skoðanakannanna á því hversu margir taka þátt.  Kastljósið eða "Landsliðið í beinni" eins og þau vilja víst kalla sig gætu haft áhuga á að fjalla um niðurstöður þessarar könnunar. Annars veit ég ekki.  Ég hefði allavegana ekkert á móti því að vera í viðtali í kastljósinu í gegnum vefmyndavél og tala um hvort að núpó-létt sé matur.
Eyrún landsliðsmaður nr.1: " athygli vekur hversu margir velja möguleika nr. 3. Hvernig skilur þú það, Grétar, sem ert starfandi fræðimaður í Svíþjóð, reyndar í allt annarri fræðigrein"
Grétar:  "Jú gaman að þú skulir spyrja Eyrún, sem ert sjónvarpskona og sjálfskipaður landsliðsmaður í beinni.. Það hvort að núpó-létt sé matur í eiginlegri merkingu virðist vera ofarlega í huga..........osfr.  Ég myndi ekki vera mikið á móti svona viðtali.
   
Tilvitnun dagsins:
I have long argued that cynisism is the primary virtue of liberal social orders.  You can find it most clearly in that parents think they have raised their children to make up their own minds. I mean thats cynicism.  Thats why people in america think that they wont be morally compramised as long as they have a position that they can distance themselves from. Thats cynicim
Stanley Hauerwas, á fyrirlestri í Baylor University (kannski ekki algerlega orðrétt hjá mér)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2005 16:30:38 / gretagu

Ég er frjáls

Nú er ég þokkalegur.  Mjög Þokkalegur.
Fór í gær á svokallað sittning.  Sittning er vinsælt meðal stúdenta í Svíþjóð.  Deildirnar halda sín eigin sittning og þangað mætir fólk, sest við langborð, borðar mat, drekkur og syngur.  Það syngur eiginlega mjög mikið.  Er eiginlega bara alltaf að syngja.  En ég mætti sem sagt á svoleiðis í gær með Völu og Arnóri.  Ég var í raun alger boðflenna. Þetta sittning var aðeins fyrir laganema og aðeins fyrir laganema sem höfðu gefið blóð svita og tár í þágu nemendafélagsins. Ég var því rosalega stressaður um að fólk færi að spyrja mig hvaða kúrsa ég væri að taka og svoleiðis.  Sem gerðist að sjálfsögðu.  Ég reyndi eins og gat að sveigja fram hjá spurningunni. En á endanum var það svo að ég gat ekki lengur dulist. Útskýrði að ég væri eiginlega ekki laganemi.  Hvað ertu að gera hér? var ég spurður.  Ég sagði að þetta væri góð spurning en ég gæti því miður ekki svarað henni ákkúrat núna. Reyndar væri ég í guðfræði og að það væru jú einskonar lagatexta að finna sumstaðar í Gamlatestamentinu.  Laganeminn sagði: "Nei".  Var samt mjög almennilegur.

Eftir þessa syndajátningu var ég frjáls.  Ég þurfti ekki lengur að dyljast. Ég gat sagt: "Ég heiti Grétar og ég er guðfræðinemi og ég veit að það er ekkert líkt lögfræði". Ég átti því góðar stundir með svíum og einum kanadamanni sem er ekki bara laganemi heldur líka hrikalega massaður hokkíleikari og ljúfmenni í þokkabót.

Fólkið í lagadeildinni hérna er ekki eins og fólk í öðrum deildum.. Það er fallegra, í dýrari fötum og í raun alveg ótrúlegur klassi á sumum þeirra.  Það er greinilegt að það eru einhverjir þarna úti sem að líkar ekki við hinn dæmigerða sænska lögfræðinema.  Á hina gömlu virðulegu byggingu laganema var einn daginn búið að spreyja með stórum svörtum stöfum: 
Ung, Rík, Dauð!  Svolítið ógó.    Ég meika samt ekki að laganemar hafi fengið að eiga alla þessa færslu hjá er.  En svona er þetta.   Ég skelli bara inn guðfræðitilvitnun í staðinn.

Tilvitnun dagsins:  "Social Scientists generally dislike fundamentalism and study it in much the same way as a forensic pathologist studies a rotting human carcass. It is distasteful, but someone has to do it"               Alister E. McGrath-The Future of Christianity-


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2